Aston Villa er í viðræðum við franska stórveldið Paris Saint-Germain um kaup á Marco Asensio.
Félagið er í leit að nýjum sóknarleikmanni þar sem Jhon Durán er á leið til Sádi-Arabíu.
Asensio er ofarlega á óskalistanum hjá Villa ásamt Joao Félix leikmanni Chelsea.
Asensio er 29 ára gamall og með eitt og hálft ár eftir af samningi hjá PSG. Hann er ekki með sæti í byrjunarliðinu og gæti franska félagið sætt sig við 20-25 milljónir evra til að selja hann.
Fabrizio Romano segir að Asensio sé mjög áhugasamur um að skipta til Aston Villa.
Asensio er hægri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað sem sóknartengiliður eða framherji. Hann gerði garðinn frægan með Real Madrid þar sem hann spilaði tæpa 300 leiki áður en hann skipti til PSG á frjálsri sölu sumarið 2023.
Hann á 38 A-landsleiki að baki fyrir Spán eftir að hafa verið lykilmaður upp yngri landsliðin.
Athugasemdir