Gary Neville hefur sakað Mikel Arteta um að kynda undir andúð stuðningsmanna Arsenal gagnvart dómurum. Ummæli Neville koma í kjölfar líflátshótana og ljótra skilaboða sem dómarinn Michael Oliver fékk eftir leik Arsenal gegn Wolves.
Neville segir að orðræða Arteta og þekktra stuðningsmanna liðsins hafi leitt til hættulegra ásakana um spillingu meðal dómara.
Neville segir að orðræða Arteta og þekktra stuðningsmanna liðsins hafi leitt til hættulegra ásakana um spillingu meðal dómara.
„Stuðningsmenn Arsenal nota hættulegt orð eins og spillingu. Sem þýðir að þeir telji að hann sé að fá borgað fyrir að dæma gegn þeim, sem er augljóslega ekki raunin," segir Neville.
„Það er enginn vafi á því að Arsenal er frekar að kynda undir umræðuna í stað þess að reyna að róa hana. Ég get kannski ekki gagnrýnt þetta því þetta var gert hjá Manchester United þegar ég var leikmaður. Samfélagsmiðlar hafa hinsvegar breytt umhverfinu, við vorum ekki að kveikja upp í ásökunum um spillingu."
Oliver er annar af fremstu dómurum Englands en gerði stuðningsmenn Arsenal bálreiða þegar hann gaf Myles Lewis-Skelly beint rautt spjald.
Athugasemdir