Brasilíska stórstjarnan Neymar er búinn að staðfesta yfirvofandi félagaskipti sín til Santos. Þau verða tilkynnt formlega á morgun en Neymar segist ekki hafa getað beðið.
Neymar staðfesti fregnirnar með birtingu á myndbandi á samfélagsmiðlum. Í myndbandinu segir hann meðal annars „ég get ekki haldið þessu inni í mér til morguns - ég er búinn að samþykkja samning hjá Santos!"
Neymar er 32 ára gamall og hefur verið meira eða minna meiddur síðustu 18 mánuði. Hann gerði garðinn frægan sem leikmaður Barcelona og skipti svo til PSG áður en hann fór til Al-Hilal í Sádi-Arabíu, en spilaði aðeins sjö leiki fyrir félagið þrátt fyrir að hafa kostað um 90 milljónir evra og þegið ofurlaun.
„Ég hef hugsað um þessa stund í langan tíma. Það eru meira en 12 ár síðan ég fór frá Santos en mér líður eins og það hafi gerst í gær. Tilfinningar mínar í garð félagsins og stuðningsmanna hafa aldrei breyst," segir Neymar meðal annars í myndbandinu sem má sjá hér neðar.
???????? ???????? pic.twitter.com/iuZZ2ggE1J
— Neymar Jr (@neymarjr) January 30, 2025
Athugasemdir