Brasilíski markmaðurinn Neto varð í gær elsti leikmaður Arsenal frá árinu 1915 til að þreyta frumraun sína þegar hann varði mark liðsins gegn Girona í Meistaradeildinni.
David Raya glímir við smávægileg meiðsli og fékk Neto kallið í gær. Neto, sem er fyrrum leikmaður Barcelona, kom til Arsenal frá Bournemouth í sumarglugganum.
Neto var í gær 35 ára og 194 daga gamall og var sá elsti til að þreyta frumraun sína síðan Ned Liddell lék sinn fyrsta leik fyrir Arsenal í apríl 1915. Liddell var þá 36 ára og 310 daga gamall.

Neto leit alls ekki vel út í marki Girona en hann var þá staðsettur vel fyrir utan teig og reyndi að slæma hönd í skot Arnaut Danjuma sem kom boltanum auðveldlega framhjá Neto. Markið var einungis það þriðja sem Arsenal hefur fengið á sig í Meistaradeildinni á þessu tímabili.
Girona komst í 1-0 í leiknum en Arsenal kom til baka og vann 1-2 sigur. Það voru þeir Jorginho og Ethan Nwaneri sem skoruðu mörk Arsenal. Fjórði sigur Arsenal í röð í keppninni staðreynd og Arsenal endaði í 3. sæti deildarkeppninnar.
Athugasemdir