Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fös 31. janúar 2025 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Chiesa: Ég vil berjast um sæti í byrjunarliðinu
Mynd: Liverpool
Mynd: Getty Images
Federico Chiesa fékk að spila 90 mínútur með Liverpool í Meistaradeildinni þar sem Arne Slot þjálfari fékk tækifæri til að hvíla lykilmenn.

Liverpool heimsótti PSV Eindhoven í lokaumferð deildakeppni Meistaradeildarinnar og beið 3-2 ósigurs, en Chiesa átti flottan leik og bjó til bæði mörk Liverpool.

Þessi ítalski kantmaður býr augljóslega yfir gæðum en hann hefur átt í miklu basli með að halda sér í formi, þar sem meiðslavandræði hafa spilað stóran þátt.

Þetta var aðeins annar byrjunarliðsleikur Chiesa frá komu hans til Liverpool undir lok síðasta sumars. Hann hefur í heildina komið við sögu í níu leikjum með Liverpool, en er staðráðinn í því að verða partur af byrjunarliðinu.

„Ég vil sanna mig hérna, ég þrái að spila fleiri leiki og sýna að ég get verið partur af byrjunarliðinu. Ég er mjög ánægður með að fá þessar 90 mínútur því ég þurfti á þeim að halda," sagði Chiesa eftir tapið.

„Við erum með frábæran leikmannahóp sem gerir baráttuna um sæti í byrjunarliðinu virkilega erfiða, en ég vil vera hérna. Ég vil berjast um sæti í þessu byrjunarliði. Þetta er stór áskorun fyrir mig og ég verð klár í slaginn næst þegar þjálfarinn þarf á mér að halda."

Chiesa er 27 ára gamall og hefur skorað 7 mörk í 51 landsleik með Ítalíu. Hann var hjá Fiorentina og Juventus áður en hann skipti yfir til Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner