Heimild: Horsens
Galdur Guðmundsson átti góða innkomu inn í lið Horsens sem mætti Randers í æfingaleik í gær.
Leiknar voru 3x45 mínútur svo margir gætu fengið mínútur í lappirnar. Tímabilið í Danmörku heldur áfram eftir um þrjár vikur, Randers er í 3. sæti í efstu deild en Horsens er í B-deildinni.
Galdur byrjaði á bekknum og lék síðasta klukkutímann eða svo. Staðan var 1-3 fyrir Randers þegar Galdur tók hlutina í sínar hendur og fiskaði tvö víti á 20 mínútna kafla sem liðsfélagar hans nýttu og jöfnuðu leikinn. Undir lokin lagði Galdur svo upp sigurmarkið í 4-3 endurkomu sigri Horsens.

Þetta var annar leikur Galdurs með Horsens en hann var keyptur til félagsins frá FCK fyrr í þessum mánuði. Galdur er 18 ára kantmaður, unglingalandsliðsmaður, sem uppalinn er hjá ÍBV og Breiðabliki.
Athugasemdir