Alex Baena, leikmaður Villarreal, hefur ákveðið að hafna stóru tilboði frá Al-Ahli í Sádi-Arabíu.
Þetta kemur fram á spænska fjölmiðlinum Relevo en þar segir að Baena hafi gefið Villarreal loforð um að klára tímabilið með félaginu og hann ætli að standa við það.
Þetta kemur fram á spænska fjölmiðlinum Relevo en þar segir að Baena hafi gefið Villarreal loforð um að klára tímabilið með félaginu og hann ætli að standa við það.
Al-Ahli var tilbúið að borga 60 milljónir evra fyrir leikmanninn, sem er riftunarverðið í samningi hans.
Baena vildi standa við loforð sitt þrátt fyrir risatilboð frá Sádi-Arabíu og þá liggur metnaður hans líka í því að spila fyrir eitt af stærstu félögum Evrópu.
Baena er vinstri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað á hægri kanti eða sem sóknartengiliður. Hann hefur komið að fjölda marka á þessu tímabili og hefur hjálpað Villarreal að blanda sér í Meistaradeildarbaráttu.
Athugasemdir