Besta deild karla fer af stað laugardaginn 5. apríl og ótímabæra spáin fyrir deildina mun verða aðalatriðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net sem verður í beinni á X977 á morgun milli 12 og 14.
Tómas Þór Þórðarson, Valur Gunnarsson og Elvar Geir Magnússon munu skoða stöðu mála hjá öllum tólf liðum deildarinnar, rýna í undirbúningstímabilið, félagaskiptamarkaðinn og helstu fréttir.
Tómas Þór Þórðarson, Valur Gunnarsson og Elvar Geir Magnússon munu skoða stöðu mála hjá öllum tólf liðum deildarinnar, rýna í undirbúningstímabilið, félagaskiptamarkaðinn og helstu fréttir.
Þá verður skoðað hvaða leikmenn þurfa að stíga upp og hverjum verður sérstaklega spennandi að fylgjast með.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir