Hollenski varnarmaðurinn Jorrel Hato ætlar ekki að yfirgefa Ajax í þessum mánuði og setur hann stefnuna á að klára tímabilið með uppeldisfélaginu.
Hato, sem er aðeins 18 ára gamall, hefur þrátt fyrir ungan aldur tekist að spila tæpa hundrað leiki með aðalliði Ajax á síðustu þremur tímabilum.
Hann er talinn allra efnilegasti varnarmaður Hollands um þessar mundir og áhuginn eðlilega mikill.
Stærstu félögin í ensku úrvalsdeildinni hafa horft til hans síðasta árið og var talað um að hann gæti yfirgefið Ajax í þessum glugga, en leikmaðurinn blæs á þær sögusagnir og segist staðráðinn í að klára tímabilið í Hollandi.
„Ég er ekki að íhuga að yfirgefa Ajax í vetur og ég stend við þá ákvörðun. Ég vil klára tímabilið með Ajax,“ sagði Hato.
Liverpool er talið leiða kapphlaupið um Hato sem sást á leik liðsins gegn Ipswich Town í síðustu viku.
Athugasemdir