Heimild: RÚV
Willum Þór Þórsson ætlar að bjóða sig fram til forseta ÍSÍ, Íþróttasambands Íslands, en RÚV greinir frá þessu.
Óvíst er hvort Lárus Blöndal, núverandi forseti ÍSÍ, muni bjóða sig fram aftur.
Willum var heilbrigðisráðherra fyrir Framsóknarflokkinn frá 2021 til 2024 en datt út af þingi í nýafstöðnum Alþingiskosningum.
Eins og flestir lesendur vita vel þá er Willum öflugur þjálfari og skilaði Íslandsmeistaratitlum í hús sem þjálfari KR og Vals. KR-ingar urðu tvisvar sinnum Íslandsmeistarar undir hans stjórn og þá gerði hann Val einnig að Íslands- og bikarmeisturum á sínum tíma. Hann þjálfað hin ýmsu fótboltalið frá 1997 til 2013.
Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið 16. - 17. maí næstkomandi.
Athugasemdir