Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 21:59
Ívan Guðjón Baldursson
Reykjavíkurmótið: KR fór illa með Val í úrslitaleiknum
Reykjavíkurmeistarar KR 2025.
Reykjavíkurmeistarar KR 2025.
Mynd: Mummi Lú
Aron Sigurðarson með verðlaunin.
Aron Sigurðarson með verðlaunin.
Mynd: Mummi Lú
Valur 0 - 3 KR
0-1 Luke Rae ('39)
0-2 Jóhannes Kristinn Bjarnason ('57)
0-3 Matthias Præst ('72)

Lestu um leikinn: Valur 0 -  3 KR

Valur og KR áttust við í úrslitaleik Reykjavíkurmóts karla í kvöld og byrjuðu Valsmenn betur, þar sem Jakob Franz Pálsson var í góðri stöðu eftir sendingu frá Gylfa Þór Sigurðssyni en mistókst að nýta færið.

KR tók völdin á vellinum er tók að líða á fyrri hálfleikinn og átti góðar sóknir áður en Luke Rae tók forystuna eftir góða stoðsendingu frá Aroni Sigurðarsyni.

KR leiddi því 0-1 í leikhlé en þurfti að gera tvær skiptingar í fyrri hálfleik, þar sem Finnur Tómas Pálmason meiddist áður en Luke Rae var tekinn útaf skömmu eftir að hafa skorað markið sitt.

Júlíus Mar Júlíusson fékk svo höfuðhögg og var tekinn af velli í hálfleik.

KR-ingar létu meiðslavandræðin ekki á sig fá og héldu áfram að sækja. Þeir uppskáru mark á 57. mínútu þegar Jóhannes Kristinn Bjarnason skoraði með frábæru skoti utan vítateigs.

Valsmenn virtust ætla að vakna til lífsins eftir annað mark KR en þess í stað refsuðu Vesturbæingar með þriðja markinu. Í þetta sinn var það Matthias Præst sem skoraði með skalla af stuttu færi.

Valur reyndi að minnka muninn á lokakaflanum en skapaði litla hættu og urðu lokatölur 0-3 fyrir KR sem er Reykjavíkurmeistari árið 2025.
Athugasemdir
banner
banner