Manchester City er í viðræðum við Porto um kaup í spænska miðjumanninum Nico Gonzalez.
Gonzalez er 23 ára gamall og er uppalinn hjá Barcelona. Hann lék 37 leiki fyrir spænska liðið tímabilið 2021-2022 en var sendur á lán til Valencia árið 2022.
Hann var síðan seldur til Porto fyrir átta og hálfa milljón evra árið 2023. Hann hefur spilað 68 leiki og skorað níu mörk fyrir portúgalska liðið.
Porto er ekki tilbúið að leyfa honum að fara en City gæti þurft að borga riftunarákvæði í samningnum hans sem er 60 milljónir evra. Þá fær Barcelona 40 prósent af næstu sölu.
Athugasemdir