Leeds United er að reyna að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í titilbaráttu Championship deildarinnar, þar sem Leeds berst við Sheffield United, Sunderland og Burnley um toppsætin dýrmætu.
Daniel Farke þjálfari Leeds segir að félagið sé að gera sitt besta til að finna réttan leikmann til að styrkja hópinn en það sé að reynast erfitt.
Leeds reyndi að krækja í Cameron Archer á lánssamningi frá Southampton en botnlið ensku úrvalsdeildarinnar hafnaði þeirri hugmynd strax.
Southampton vill halda Archer innan sinna raða eftir að hafa hleypt Ben Brereton Díaz til Sheffield fyrr í janúar.
Archer er 23 ára gamall og hefur skorað 2 mörk í 21 úrvalsdeildarleik það sem af er tímabils.
„Það er mjög erfitt að bæta leikmannahópinn okkar í janúar, við erum mjög varkárir því við viljum ekki kaupa rangan mann inn. Við þurfum ekki að styrkja okkur og munum ekki gera það nema ef við finnum réttan aðila," sagði Daniel Farke meðal annars.
„Það mikilvægasta er að enginn leikmaður yfirgefi okkur fyrir gluggalok."
Athugasemdir