Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin í dag - Hvaða lið fara í 16-liða úrslit?
Man Utd getur tryggt sér sæti í 16-liða úrslit í kvöld
Man Utd getur tryggt sér sæti í 16-liða úrslit í kvöld
Mynd: EPA
Áttunda og síðasta umferðin í deildarkeppni Evrópudeildarinnar fer fram klukkan 20:00 í kvöld og ræðst þá endanlega hvaða lið fara beint áfram í 16-liða úrslit og hvaða lið fara í umspil.

Ítalska félagið Lazio er eina liðið sem hefur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum en liðið heimsækir Braga.

Manchester United getur tryggt sæti sitt þangað er liðið mætir Steaua frá Rúmeníu í kvöld og þá getur Tottenham sömuleiðis komið sér þangað er liðið tekur á móti Íslendingaliði Elfsborg.

Kristian Nökkvi Hlynsson og félagar í Ajax mæta Galatasaray, en liðið berst um að komast áfram í umspil. Elías Rafn Ólafsson og hans menn í Midtjylland eru í sömu stöðu, en það fær Jose Mourinho og lærisveina hans í Fenerbahce í heimsókn til Danmerkur.

Orri Steinn Óskarsson verður í eldlínunni er Real Sociedad mætir PAOK frá Grikklandi. Bæði lið eru með 10 stig og eru á leið í umspil eins og staðan er.

Malmö, lið Daníels Tristans Guðjohnsen, mætir Slavía Prag frá Tékklandi, en Malmö á ekki lengur möguleika á að komast áfram í umspilið.

Leikir dagsins:
20:00 Ajax - Galatasaray
20:00 Athletic - Plzen
20:00 Dynamo K. - Rigas FS
20:00 Midtjylland - Fenerbahce
20:00 Twente - Besiktas
20:00 Steaua - Man Utd
20:00 Ferencvaros - AZ
20:00 Lyon - Ludogorets
20:00 Maccabi Tel Aviv - Porto
20:00 Nice - Bodo-Glimt
20:00 Olympiakos - Qarabag
20:00 Rangers - St. Gilloise
20:00 Real Sociedad - PAOK
20:00 Roma - Eintracht Frankfurt
20:00 Anderlecht - Hoffenheim
20:00 Slavia Prag - Malmö
20:00 Braga - Lazio
20:00 Tottenham - Elfsborg
Athugasemdir
banner
banner