Þýska blaðið BILD segir vera merki um að spænski þjálfarinn Xabi Alonso hætti með Bayer Leverkusen í sumar og taki við Real Madrid á Spáni.
Alonso gerði Leverkusen óvænt að meisturum á síðasta tímabili og gerði gott betur en það en liðið fór taplaust í gegnum deildina í fyrsta sinn í sögunni.
Einnig vann liðið þýska bikarinn og komst í úrslitaleik Evrópudeildarinnar, þar sem það tapaði fyrsta og eina leik sínum á leiktíðinni.
Alonso hefur lengi vel verið orðaður við endurkomu til Real Madrid og er talið að það verði lok af því í sumar. BILD segir að Leverkusen vilji halda Alonso en að það séu merki um að hann sé á förum.
Carlo Ancelotti er þjálfari Real Madrid og hefur hann opinberlega sagt að hann væri til í að þjálfa það til 2029, en að það væri ekki í hans verkahring að ákveða það.
Flestir miðlar eru sammála um það að þetta verði hans síðasta leiktíð með liðið og eru Madrídingar reiðubúnir að hefja nýjan kafla með Alonso, sem mun snúa aftur á Santiago Bernabeu ellefu árum eftir að hafa yfirgefið félagið.
Athugasemdir