Brighton hefur hafnað 54 milljóna punda tilboði Al Nassr í vængmanninn Kaoru Mitoma. Samkvæmt heimildum CBS er Al Nassr að undirbúa nýtt 90 milljóna punda tilboð í Japanann.
Í umfjöllun Sky Sports er sagt að Mitoma sé ekki til sölu.
Hann er 27 ára og hefur komið við sögu í öllum 23 leikjum Brighton í úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hann hefur skorað fimm mörk og lagt upp þrjú á þessari leiktíð. Alls hefur hann skorað 18 mörk í 92 leikjum með Brighton.

Mitoma kom frá Kawasaki Frontale sumarið 2021 en lék eitt tímabil með Union SG á láni í Belgíu áður en hann kom inn í lið Brighton.
Hann á að baki 26 landsleiki fyrir Japan og hefur í þeim skorað átta mörk.
Al Nassr er að láta til sín taka á markaðnum undir lok gluggans í Sádi-Arabíu. Félagið er að klára kaup á Jhon Duran frá Aston Villa eins og fjallað var um fyrr í dag.
Athugasemdir