Giuliano Simeone skoraði sitt fyrsta Meistaradeildarmark í gær, og lagði upp annað mark á glæsilegan hátt, þegar Atletico Madrid vann 4-1 útisigur gegn Red Bull Salzburg.
Altetico Madrid endaði í fimmta sæti í deildarkeppni Meistaradeildarinnar og flaug beint í 16-liða úrslitin.
Altetico Madrid endaði í fimmta sæti í deildarkeppni Meistaradeildarinnar og flaug beint í 16-liða úrslitin.
Giuliano er sonur Diego Simeone, stjóra Atletico Madrid og munu þeir feðgar aldrei gleyma þessum leik.
Þetta var annað mark Giuliano Simeone á tímabilinu en þessi 22 ára leikmaður var frábær á hægri vængnum í gær.
„Hann er gríðarlega orkumikill og með góðan kraft, það er grunnur sem getur komið honum langt. Hann getur bætt sig á öðrum sviðum og mun gera það ef hann heldur áfram að leggja mikið á sig," segir Diego Simeone um son sinn.
Giuliano spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Argentínu í nóvember. Hann varð þá annar sonur Diego Simeone til að spila fyrir landsliðið, á eftir Giovanni Simeone sem spilar fyrir Napoli.
Athugasemdir