AC Milan er staðráðið í því að kaupa mexíkóska framherjann Santiago Giménez frá Feyenoord.
Milan er að selja Álvaro Morata til Galatasaray og þarf á nýjum framherja að halda til að berjast við Tammy Abraham og Luka Jovic um sæti í byrjunarliðinu.
Giménez er 23 ára gamall og hefur verið funheitur á tímabilinu, þar sem hann á 16 mörk og 3 stoðsendingar í 19 leikjum með Feyenoord.
Milan reyndi að kaupa Giménez undir lok sumargluggans en tókst ekki og lagði fram annað tilboð í framherjann fyrr í janúar, sem hljóðaði upp á tæpar 30 milljónir evra, en Feyenoord neitaði.
Talið er að nýtt tilboð Milan nemi 35 milljónum evra en fjölmiðlar í Hollandi segja að Feyenoord vilji fá minnst 40 milljónir fyrir leikmanninn sinn.
Athugasemdir