Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 14:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Enn möguleiki að Bjarni Mark fari í KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er ekki útilokað að Bjarni Mark Duffield, leikmaður Vals, verði leikmaður KA á nýjan leik. Hann lék síðast með liðinu sumarið 2018 og hefur KA lagt fram tilboð í miðjumanninn.

Fótbolti.net greindi frá því fyrr í þessum mánuði að Fram hefði fengið samþykkt tilboð í Bjarna og í kjölfarið var sagt frá því að KA hefði einnig áhuga.Samkvæmt heimildum hafnaði Bjarni sjálfur tilboði Fram.

Bjarni er 29 ára miðjumaður, Siglfirðingur, sem skipti yfur í KA í 2. flokki. KA leitar að liðsstyrk á miðsvæðinu þar sem Daníel Hafsteinsson yfirgaf félagið og samdi við Víking og þá gat Sveinn Margeir Hauksson einnig leikið á miðjunni.

Bjarni er samningsbundinn Val út tímabilið 2026. Hann skrifaði undir þriggja ára samning fyrir tæpu árið síðan þegar hann kom á Hlíðarenda eftir veru hjá Brage í Svíþjóð og Start í Noregi.

Hann náði ekki að stimpla sig almennilega inn í lið Vals á síðasta tímabili en hefur verið í byrjunarliðinu í öllum þremur leikjum liðsins í Reykjavíkurmótinu.

Valur mætir KR í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í kvöld, sá leikur fer fram í Egilshöll. Hann verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net en flautað verður til leiks klukkan 20:00.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner