Gluggar áfram opnir á Norðurlöndunum
Karl Friðleifur, Ari og Danijel í fremri röð ásamt þeim Ingvari Jónssyni, Gísla Gotta og Tarik Ibrahimagic. Myndin er frá fyrsta heimaleik Víkings í sjálfri Sambandsdeildinni.
Víkingur hefur þegar selt einn leikmann út í atvinnumennsku þennan veturinn; miðjumaðurinn ungi Gísli Gottskálk Þórðarson var keyptur til Lech Poznan í Póllandi eftir eftirtektarverða frammistöðu með Víkingi.
Til viðbótar við Gísla gætu þrír leikmenn farið frá Víkingi út í atvinnumennsku á næstu vikum. Það eru þeir Ari Sigurpálsson, Danijel Dejan Djuric og Karl Friðleifur Gunnarsson. Gluggarnir í stærstu deildum Evrópu loka á næstu dögum en á Norðurlöndunum verða félagaskiptagluggarnir opnir lengur.
Til viðbótar við Gísla gætu þrír leikmenn farið frá Víkingi út í atvinnumennsku á næstu vikum. Það eru þeir Ari Sigurpálsson, Danijel Dejan Djuric og Karl Friðleifur Gunnarsson. Gluggarnir í stærstu deildum Evrópu loka á næstu dögum en á Norðurlöndunum verða félagaskiptagluggarnir opnir lengur.
Ari og Danijel eru báðir fæddir árið 2003 en Karl er fæddur árið 2001. Allir hafa þeir staðið sig vel með Víkingi í Sambandsdeildinni og var Karl í liði ársins hér á Fótbolti.net fyrir frammistöðu sína tímabilið 2024.
„Það er ekkert formlega komið inn á borð til okkar, en ef ég að vera hreinskilinn þá finnst mér líklegt að það komi eitthvað. Það er nóg eftir af þessum glugga og við sjáum bara til. Ef það koma tilboð þá verður það skoðað í rólegheitunum," segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
Fjallað hefur verið um áhuga á Ara frá Djurgården og AIK í Svíþjóð og hann hefur einnig verið orðaður við Brann í Noregi. Ari er snöggur kantmaður sem skoraði þrjú mörk í sex leikjum í Sambandsdeildinni og í Bestu deildinni skoraði hann átta mörk og lagði upp tíu. Ari á að baki 36 leiki fyrir yngri landsliðin.
Karl Friðleifur er bakvörður sem getur spilað bæði hægra og vinstra megin. Hann átti sem fyrr segir frábært tímabil, skoraði eitt mark og lagði upp eitt í Sambandsdeildinni og í Bestu deildinni skoraði hann tvö mörk og lagði upp sex. Það hefur aðeins heyrst af áhuga úr norsku úrvalsdeildinni og hann einnig verið orðaður við Gautaborg í Svíþjóð. Hann á að baki 30 leiki fyrir yngri landsliðin.
Kári var sérstaklega spurður út í Karl Friðleif sem hefur farið aðeins undir radarinn fyrir frammistöðu sína.
„Það er mjög skrítið að það sé ekki meira talað um Kalla, hann átti frábært tímabil og hann var m.a. tilnefndur sem íþróttamaður Reykjavíkur fyrir vikið. Hann getur bæði spila vinstri og hægri bakvörð, sem er fáránlega mikill kostur í leikmanni. Það er alveg hægt að færa rök fyrir því að hann hafi verið betri vinstra megin sem er alveg ótrúlegur kostur verandi réttfættur. Ég get í raun ekki hrósað honum nóg fyrir það sem hann hefur gert."
„Ég hef heyrt af einhverjum áhuga hingað og þangað, en þangað til það er komið inn á borð til okkar þá eru það bara sögusagnir," segir Kári.
Danijel er sóknarmaður sem skoraði eitt mark og lagði upp eitt í Sambandsdeildinni. Hann skoraði átta mörk og lagði upp fjögur í Bestu deildinni 2024. Danijel á að baki þrjá A-landsleik og 56 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann var í fyrra nálægt því að ganga í raðir Ludogorets í Búlgaríu.
„Ég veit að það eru lið sem hafa verið að fylgjast með Danijel í lengri tíma," segir Kári.
Verða reaktívir frekar en próaktívir
Kári segir að hópur Víkinga sé stór og því líklegra að Víkingar muni, úr því sem komið er, skoða markaðinn ef leikmaður fer frá þeim, frekar en að stækka hópinn enn frekar.
„Við erum komnir með mjög stóran hóp, erum búnir að bæta við fjórum leikmönnum. Hópurinn er kominn vel yfir 20 manns ef ég tel þetta rétt. Maður veit samt aldrei, ef réttu bitarnir koma, þá er alveg hægt að skoða það," segir Kári.
Karl Friðleifur Gunnarsson????????????????????
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) January 27, 2025
IFK Göteborg er meðal liða sem hafa áhuga á Karli Friðleifi Gunnarssyni.
Einnig er áhugi á bakverðinum frá liðum í efstu deild í Noregi. pic.twitter.com/k1W7ikBCpk
Athugasemdir