Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   fös 31. janúar 2025 13:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viðtal
Alexandra gat ekki gert meira á Ítalíu - „Nú er hringnum lokað"
Komin í heimilislegt umhverfi í Kristianstad
Alexandra Jóhannsdóttir.
Alexandra Jóhannsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alexandra gekk í raðir Kristianstad á dögunum.
Alexandra gekk í raðir Kristianstad á dögunum.
Mynd: Kristianstad
Hlín Eiríksdóttir, Katla Tryggvadóttir og Guðný Árnadóttir. Katla og Guðný eru enn hjá félaginu en Hlín er farin til Leicester á Englandi.
Hlín Eiríksdóttir, Katla Tryggvadóttir og Guðný Árnadóttir. Katla og Guðný eru enn hjá félaginu en Hlín er farin til Leicester á Englandi.
Mynd: Kristianstad
Alexandra fagnar marki með íslenska landsliðinu.
Alexandra fagnar marki með íslenska landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna hefst nýr kafli í Svíþjóð.
Núna hefst nýr kafli í Svíþjóð.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
„Ég er búin að vera hérna í eina og hálfa viku og mér líst rosalega vel á þetta. Ég er mjög spennt," segir landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir í viðtali við Fótbolta.net. Hún gekk á dögunum í raðir Íslendingafélagsins Kristianstad eftir dvöl hjá Fiorentina á Ítalíu.

Alexandra er 24 ára gömul og er uppalin í Haukum. Hún lék með Breiðabliki áður en hún fór í atvinnumennsku til Eintracht Frankfurt í Þýskalandi í byrjun árs 2021. Þaðan fór hún í Fiorentina og er svo komin í Kristianstad núna.

„Það var ekki mjög langur aðdragandi að þessu. Ég ákvað það í desember að ég vildi prófa eitthvað annað. Ég var ekki að fá þann spiltíma sem ég vildi fá og mér fannst ég eiga skilið að spila meira. Ég sagðist þá vilja fara frá Fiorentina. Ég ákvað að skoða eitthvað annað og þá kom Kristianstad upp," segir Alexandra.

Ekki sátt með hlutverk sitt í Fiorentina
Alexandra, sem er 24 ára, var á sínu þriðja tímabili með Fiorentina en hún hafði aðeins byrjað einn leik í ítölsku úrvalsdeildinni á yfirstandandi tímabili. Síðustu tvö tímabil hafði hún verið í góðu hlutverki mest af.

„Mér fannst ég búin að sýna meira en ég fékk svo. Ég var að standa mig vel á æfingum og í þeim leikjum sem ég var að koma inn í. Mér fannst ég eiga meira skilið," segir Alexandra.

„Ég fékk svo sem engar útskýringar, allavega engar útskýringar sem mér fannst passa. Við vorum ekki á sömu blaðsíðu. Þegar þú ert búin að gefa allt í langan tíma, þá þarftu að skoða eitthvað annað. Mér fannst ég gefa allt sem ég gat og á ákveðnum tímapunkti getur maður ekki gert meira."

En af hverju breytist þetta svona frá síðustu tímabilum?

„Á fyrsta tímabilinu mínu þarna var ég með annan þjálfara og spilaði nánast alla leiki. Svo lenti ég í því óhappi á öðru tímabilinu að ökklabrjóta mig. Þá kom nýr þjálfari og ég missti af byrjuninni. Seinni hlutann í fyrra var ég að spila alla leiki og var lykilkona í liðinu. Ég byrja tímabilið núna á að spila Meistaradeildarleikina en er svo tekin út úr liðinu af einhverjum ástæðum. Ég kem svo aftur inn í liðið og meiðist, er frá í einhverja tvo mánuði. Eftir það var þetta erfitt. Mér fannst ég allavega eiga meira skilið," segir Alexandra og bætir svo við:

„Ég held ég hafi bætt mig sem leikmaður á Ítalíu. Ég þurfti að vera teknískari og ég vona að ég hafi bætt mig í þeim þætti leiksins."

Leist langbest á Kristianstad
Eftir að hún ákvað að leita annað þá kom eitthvað upp en Kristianstad var það sem henni leist langbest á.

„Það var eitthvað opið en eftir að hafa talað við Kristianstad, þá leist mér langbest á það. Hugmyndafræðin hjá þjálfurunum og hvernig þau hugsa um þetta, markmið þeirra með leikmönnum og svoleiðis. Ég sá fram á að bæta mig mest sem leikmaður hérna. Þjálfararnir pæla rosalega mikið í leikmönnum og vinna mjög mikið með þér; þau vilja hjálpa þér að bæta þig. Þau eru aldrei að fara að refsa manni fyrir að reyna eitthvað, sem var kannski málið á hinum staðnum," segir Alexandra.

„Ég er bara búin að vera hérna í viku en ég myndi segja að þetta snúist meira um einstaklingsgæðin hjá Fiorentina en Svíþjóð er líkara íslenska boltanum þar sem er barátta, hlaup og svoleiðis hlutir. Ástandið hjá Fiorentina í síðustu leikjum þá sérðu að þetta eru ellefu einstaklingar en þetta er meira lið í Kristianstad. Það eru mín fyrstu viðbrögð, mín tveggja vikna reynslu."

Heimilslegt
Það eru tveir aðrir Íslendingar á mála hjá félaginu; Guðný Árnadóttir og Katla Tryggvadóttir. Hlín Eiríksdóttir var það líka en hún fór til Leicester á Englandi í gær. Svo er þetta bara mikið Íslendingasamfélag þarna.

„Það er búið að vera voða heimilislegt síðan ég kom hingað. Það er hugsað mjög vel um mig," segir Alexandra.

„Að koma inn hérna miðað við það hvernig var að koma inn á Ítalíu eða í Þýskalandi, þetta er bara himinn og haf. Ég er með tvo Íslendinga með mér í liðinu. Ég get alltaf spurt þær ef það er eitthvað. Svo er Beta (Elísabet Gunnarsdóttir) hérna innan handar með allt og Tinna sjúkraþjálfari."

„Það verður ógeðslega gaman að spila með Íslendingunum í liðinu; Guðný fyrir aftan mig og Kötlu inn á miðsvæðinu. Maður getur nánast talað íslensku inn á vellinum."

Lokar hringnum
Alexandra fór út til Kristianstad á reynslu þegar hún var enn leikmaður Hauka árið 2016. Hún þekkir því eitthvað til samfélagsins.

„Ég, Guðný (Árnadóttir) og Sveindís (Jane Jónsdóttir) fórum hingað á reynslu 2016 og núna er hringnum lokað. Núna höfum við allar spilað fyrir félagið þegar ég spila fyrsta leikinn. Það er eitthvað búið að breytast frá því ég var hjá reynslu. Það er kominn nýr völlur og svoleiðis, en mikið svipað líka," segir Alexandra en hún er enn að koma sér fyrir í bænum.

„Ég hef ekki náð að koma mér mikið fyrir enn sem komið er. Þetta hlýtur allt að koma. Annars er ekki mikið að koma sér inn í þetta bæjarfélag, ég sá hann allan fyrsta daginn. Það er mikill munur á Flórens og Kristianstad, en þetta er rosalega næs þar sem ég get labbað og hjólað út um allt. Það er mikið af Íslendingum hérna."

Er það ekki alltaf markmiðið?
Kristianstad endaði í fjórða sæti sænsku deildarinnar á síðasta tímabili og stefnir eflaust á að gera betur á næstu leiktíð.

„Ég myndi allavega halda að markmiðið sé að gera betur en í fyrra. Í fyrra endaði liðið í fjórða sæti. Það hefur ekki verið fundur um markmið fyrir sumarið en er ekki alltaf markmiðið að gera betur en í fyrra?" segir Alexandra og bætir við að lokum.

„Ég er ótrúlega spennt að byrja að spila og fyrir tímabilinu. Þetta verður gaman."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner