Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   fös 31. janúar 2025 13:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mikil barátta um Evan Ferguson
Evan Ferguson.
Evan Ferguson.
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur bæst í kapphlaupið um Evan Ferguson, sóknarmann Brighton.

Bayer Leverkusen, Arsenal, Bournemouth, Everton, Tottenham og West Ham hafa öll verið orðuð við Ferguson en líklegt þykir að hann muni yfirgefa Brighton áður en glugginn lokar, annað hvort á láni eða þá að hann verði seldur.

Það er ekki langt síðan Ferguson þótti mest spennandi sóknarmaður ensku úrvalsdeildarinnar. En hann hefur lítið fengið að spila eftir að Fabian Hürzeler tók við Brighton síðasta sumar. Meiðsli hafa líka verið að stríða honum.

Hann varð aðeins fjórði leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að skora þrennu 18 ára og yngri er hann gerði þrennu gegn Newcastle í fyrra. Það hefur hægst heldur betur á ferli hans eftir það en meiðsli og samkeppni í Brighton hafa haft áhrif á hann.

Félagaskiptaglugginn lokar á mánudaginn og líklegt þykir að Ferguson finni sér annað félag áður en glugginn lokar.
Athugasemdir
banner
banner