Það er mikil barátta um norska miðjumanninn Sverre Nypan en útlit er fyrir að hann muni klára tímabilið með Rosenborg í Noregi.
Þetta kemur fram á The Athletic en fjallað hefur verið um mikinn áhuga á leikmanninum síðustu daga.
Þetta kemur fram á The Athletic en fjallað hefur verið um mikinn áhuga á leikmanninum síðustu daga.
Arsenal hefur verið í viðræðum um Nypan en Aston Villa og Girona hafa líka sýnt honum áhuga. Girona er systurfélag Manchester City.
En núna er búist við því að Nypan muni allavega vera hjá Rosenborg til sumars og mögulega út tímabilið í Noregi, sem er þangað til í nóvember.
Nypan er nýlega orðinn 18 ára gamall. Hann skoraði átta mörk og gaf sjö stoðsendingar í 28 deildarleikjum í fyrra, er algjör lykilmaður hjá Rosenborg.
Nypan ætlar að taka sér góðan tíma til að taka ákvörðun um framtíðina.
Athugasemdir