Það voru nokkrir Íslendingar sem komu við sögu í leikjum dagsins víða um heim.
Íslendingalið Halmstad, Ham-Kam og Kolding unnu æfingaleiki gegn Angelholm, Raufoss og Arges á meðan Fredericia gerði jafntefli við Odense.
Lærisveinar Milos Milojevic í liði Al-Wasl gerðu þá jafntefli við Ittihad Kalba í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og eru áfram um miðja deild þar, með 18 stig eftir 14 umferðir.
Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliði Rosenborg í lokaleik dagsins en honum tókst ekki að skora á æfingamóti gegn Gautaborg.
Lokatölur urðu 1-0 fyrir Gautaborg er liðin mættust í fyrstu umferð í Atlantic Cup æfingamótinu.
Bröndby, Mafra, FC Dallas og varalið Brentford eru meðal liða sem taka þátt í æfingamótinu, auk Torpedo Kutaisi frá Georgíu og Varnamo frá Svíþjóð.
Goteborg 1 - 0 Rosenborg
Halmstad 3 - 1 Angelholm
Al-Wasl 1 - 1 Ittihad Kalba
Raufoss 1 - 3 Ham-Kam
Fredericia 1 - 1 OB
Arges 0 - 1 Kolding
Athugasemdir