Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Watkins árið 2020: Draumurinn að spila fyrir Arsenal
Mynd: Getty Images
Arsenal bauð í gær 60 milljónir punda í Ollie Watkins framherja Aston Villa sem hafnaði tilboðinu.

Arsenal er greinilega í framherjaleit til að styrkja sóknarleik liðsins. Kallað hefur verið eftir framherja í dágóðan tíma en fyrst núna virðist Arsenal raunverulega vera að reyna fá inn framherja.

Það þykir ólíklegt að Aston Villa samþykki að hleypa Watkins í burtu þar sem félagið er að selja varaskeifu Watkins, Jhon Duran, til Sádi-Arabíu. Villa er komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar og vill líka klára tímabilið í úrvalsdeildinni vel.

Í kjölfar tilboðsins hefur gamalt viðtal við Watkins vakið athygli en hann sagði árið 2020, þegar hann var leikmaður Brentford í B-deildinni, að draumur hans væri að spila með Arsenal einn daginn.

„Já, það er draumurinn að spila með Arsenal einn daginn. En ég veit að það er hæpið," sagði Watkins.

Endar Watkins hjá Arsenal? Það verður að koma í ljós en Unai Emery, stjóri Villa, ýjaði að því eftir leik Villa gegn Celtic í gærkvöldi að Arsenal þyrfti að hækka tilboð sitt verulega til að eiga möguleika á því að fá Watkins.

Hann er 29 ára Englendingur sem 69 mörk í 169 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner