Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 11:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mikael Egill nú þegar merktur Genoa
Mikael Egill Ellertsson.
Mikael Egill Ellertsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson er að ganga í raðir Genoa frá Venezia en bæði þessi félög leika í ítölsku úrvalsdeildinni.

Genoa mun borga um 3,5 milljónir evra fyrir Mikael sem gerir þetta að einni dýrustu sölu í sögu Venezia.

Nú þegar eru ítalskir miðlar farnir að birta myndir af Mikael í fatnaði merktum Genoa en hann gekkst undir læknisskoðun hjá félaginu í gær.

Búist er við því að hann verði lánaður aftur til Venezia og muni klára tímabilið þar.

Mikael gekk til liðs við Venezia frá Spezia í janúar árið 2023. Hann hefur leikið 70 leiki og skorað sex mörk fyrir félagið. Liðið er í 19. sæti Serie A með 16 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.

Genoa er í 12. sæti deildarinnar en liðið hefur verið á uppleið síðan Arsenal goðsögnin Patrick Vieira tók við liðinu í nóvember en þá var liðið í 17. sæti.

Hér fyrir neðan má sjá myndir af Mikael merktum Genoa en félögin eiga enn eftir að staðfesta skiptin.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner