Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 19:01
Ívan Guðjón Baldursson
Sádi-Arabía: Jói Berg tapaði gegn stórstjörnum - Ronaldo hetjan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Getty Images
Það fóru þrír leikir fram í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag þar sem Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn í 0-2 tapi Al-Orubah gegn stjörnunum í Al-Ahli.

Jóhann Berg og félagar sáu vart til sólar gegn ógnarsterkum andstæðingum en þeim tókst þó að halda sér inni í leiknum allt þar til seint í uppbótartíma. Al-Ahli stjórnaði leiknum og hefði hæglega getað sigrað með meira en tveggja marka mun.

Riyad Mahrez lagði fyrsta mark leiksins upp snemma og tókst Al-Ahli ekki að innsigla sigurinn fyrr en í uppbótartíma, þegar Ivan Toney skoraði úr vítaspyrnu á 96. mínútu.

Al-Ahli er í fimmta sæti með 35 stig eftir 18 umferðir, átta stigum á eftir toppliðum Al-Hilal og Al-Ittihad sem eiga leik til góða.

Al-Nassr er í þriðja sæti með 38 stig eftir sigur gegn Al-Raed. Cristiano Ronaldo gerði herlusmuninn þar sem hann skoraði og lagði upp í 1-2 sigri á útivelli.

Marcelo Brozovic lagði upp fyrir Ronaldo og voru Sadio Mané, Otávio og Mohamed Simakan einnig með í byrjunarliðinu.

Al-Riyadh vann að lokum 1-0 sigur gegn Odion Ighalo og félögum í Al-Wehda.

Al-Orubah 0 - 2 Al-Ahli
0-1 Z. Al-Johani ('9)
0-2 Ivan Toney ('96, víti)

Al-Raed 1 - 2 Al-Nassr
0-1 Cristiano Ronaldo ('35)
0-2 N. Boushal ('47)
1-2 A. Sayoud ('76)

Al-Riyadh 1 - 0 Al-Wehda
1-0 A. Al-Owayshir ('65, sjálfsmark)
Athugasemdir
banner
banner
banner