Það var tilkynnt í morgun að Niko Kovac sé tekinn við stjórn Borussia Dortmund eftir að Nuri Sahin var látinn fara.
Kovac skrifar undir eins og hálfs árs samning, gildir út næsta tímabil. Kovac er 53 ára Króati sem fæddur er í Berlín. Hann var síðast stjóri Wolfsburg en þar á undan var hann hjá Mónakó, Bayern Munchen, Frankfurt og landsliðsþjálfari Króatíu.

Það var hins vegar rætt við aðra áður en Kovac var ráðinn og þar á meðal var Ralf Rangnick, landsliðsþjálfari Austurríkis.
Hann hins vegar hafnaði starfinu þar sem hann er einbeittur á að stýra austurríska landsliðinu.
Rangnick, sem er 66 ára, er mikils metinn í Þýskalandi eftir að hafa stýrt fjölda liða þar. Hann er með sterka hugmyndafræði en ætlar ekki að færa sig um set núna.
Athugasemdir