Árekstrarhætta skapaðist á milli tveggja flugvéla yfir Skerjafirði í febrúar í fyrra. Úrslitaleikur deildabikarsins á Englandi truflaði flugumferðastjóra.
Þetta kemur fram í skýrslu frá rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Þetta kemur fram í skýrslu frá rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Þrír flugumferðarstjórar voru á vakt á þessum tíma. Þriðji flugumferðarstjórinn var í hvíld, en var þó staddur í vinnurými
flugturnsins og tók þátt í umræðum um fótboltaleikinn.
Í skýrslunni segir: „Við uppspilun á umhverfisupptöku í flugturninum kom í ljós að talsvert mikið var um skvaldur í vinnurými flugturnsins, sem ekki tengdist flugumferðarstjórninni. Á milli klukkan 15:07 og 15:14 áttu sér stað miklar umræður í vinnurými flugturnsins um úrslitaleik í fótbolta á Englandi sem var þá nýbyrjaður. Ljóst er á upptökunum að úrslitaleikurinn var hafður í gangi í sjónvarpi sem staðsett er í vinnurýminu í flugturninum, á vegg fyrir aftan vinnustöðvar turns og grundar."
Klukkan 15:21 fór svo aftur að bera á háværu skvaldri í flugturninum út af fótboltaleiknum sem var í gangi í sjónvarpinu, leik sem var á milli Liverpool og Chelsea. Hélt það áfram næstu mínúturnar.
Þessar umræður, ásamt því að einn flugumferðarstjóranna missti ræmustokk í gólfið, urðu til þess að árekstrarhætta myndaðist á milli tveggja flugvéla.
„Miklar umræður um fótboltaleikinn í sjónvarpinu áttu sér stað á milli allra flugumferðarstjóranna í flugturninum um það leyti er árekstrarhættan varð," segir í skýrslunni og þar stendur jafnframt: „Það er niðurstaða RNSA að fótboltaleikurinn í sjónvarpinu, umræðurnar og skvaldrið í vinnurými flugturnsins hafi haft áhrif á aðdraganda þessa alvarlega flugumferðaratviks. Einnig telur RNSA að óhappið þegar ræmustokkurinn féll í gólfið hafi haft áhrif í aðdraganda þessa alvarlega flugumferðaratviks, með því að enn frekar draga athygli allra í flugturninum frá flugumferðinni."
Í kjölfar þessa atviks, þann 26. febrúar, var sjónvarpið aftengt í flugturninum.
Hægt er að lesa skýrsluna í heild sinni hérna en leikurinn endaði með dramatískum sigri Liverpool þar sem Virgil van Dijk skoraði sigurmarkið undir lok framlengingar.
Athugasemdir