Morgan Rogers tók boltann með sér heim eftir leik Aston Villa og Celtic í Meistaradeildinni. Rogers skoraði þrennu í 4-2 sigri Aston Vila sem tryggði Villa í topp átta í Meistaradeildinni og þarf liðið því ekki að fara í umspil um sæti í 16-liða úrslitum.
Rogers skráði sig í sögubækurnar með því að vera fyrsti leikmaðurinn í sögu Meistaradeildarinnar til þess að skora tvö mörk á fystu fimm mínútum leiksins. Celtic svaraði með tveimur mörkum frá Adam Idah en Ollie Watkins og Rogers kláruðu svo dæmið fyrir Villa.

„Þetta er klárlega toppurinn á mínum ferli til þessa. Þetta var klikkuð upplifun og klikkað að vera að hluti af þessum leik. Þetta er risastórt afrek og við eigum að vera stoltir af okkur."
„Ég hef aldrei áður skorað tvö mörk í leik á mínum ferli og hef verið með það í huga í smá tíma. Ég hef aldrei upplifað þetta, og að gera það á þessu sviði þegar við þurfum a vinna er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma."
„Við höfum rætt um að byrja leikina betur, að lenda ekki í brekku sem við þurfum að yfirstíga. Við þurfum að vinna enn meira í því, en góð byrjun kemur okkur á góðan stað," sagði Rogers eftir leikinn.
Rogers kom til Aston Villa frá Middlesbrough fyrir um ári síðan. Hann var hjá Manchester City á sínum tíma og það er ekkert alltof langt síðan hann var á láni hjá Lincoln City (2021) í ensku C-deildinni. Rogers er 22 ára Englendingur sem heldur betur hefur blómstrað í vetur.
Athugasemdir