Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 09:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Staðfestir að Tel vilji fara - Orðaður við ensk stórlið
Mynd: EPA
Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern Munchen, hefur staðfest að Mathys Tel, 19 ára framherji liðsins, vilji fara frá félaginu.

Tel vildi upphaflega vera áfram og berjast fyrir stöðu sinni en hefur skipt um skoðun.

Eberl staðfesti tíðindin eftir sigur Bayern gegn Slovan Bratislava í Meistaradeildinni í gær.

„Í desember sagði Mathys að hann vildi reyna stimpla sig inn. Núna hefur hann sagt að hann vilji fara. Við þurfum að hugsa um hvort við hleypum honum burt," sagði Eberl.

Arsenal, Chelsea, Manchester United og Tottenham eru sögð hafa áhuga á Tel en það kom fram í slúðurpakkanum í morgun.

Tel er franskur sóknarmaður sem getur bæði spilað sem fremsti maður og á vinstri kantinum. Hann kom til Bayern frá Rennes árið 2022. Hann hefur ekki skorað fyrir Bayern á tímabilinu en á síðasta tímabili skoraði hann tíu mörk í 41 leik. Hjá Bayern er hann í harðri samkeppni við markavélina Harry Kane.
Athugasemdir
banner
banner