Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tottenham setur sig í samband við Bayern
Á körfuboltaleik í desember.
Á körfuboltaleik í desember.
Mynd: EPA
Tottenham hefur sett sig í samband við Bayern Munchen og ræðir við þýska félagið um möguleikann á að fá Mathys Tel í sínar raðir.

Bayern staðfesti í gærkvöldi að franski sóknarmaðurinn vildi leita annað og vill Tottenham styrkja sóknarlínu sína.

Það er Sky í Þýskalandi sem fjallar um málið.

„Ég veit ekki hvort það náist samkomulag en Tottenham hefur alveg klárlega byrjað samtalið við FC Bayern. Fleiri félög eru einnig áhugasöm, Aston Villa og Chelsea eru enn í baráttunni og líka Marseille," segir Florian Plattenberg.

Arsenal og Manchester United hafa einnig verið orðuð við Frakkann sem hefur ekki verið í stóru hlutverki á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner