Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá því að spænski landsliðsfyrirliðinn Álvaro Morata sé að ganga í raðir tyrkneska stórveldisins Galatasaray fyrir gluggalok.
Morata byrjaði mjög vel með AC Milan síðasta haust en var ekki sérlega góður í vetur og vill Sergio Conceicao, nýr þjálfari Milan, nota aðra leikmenn í hans stað.
Morata er 32 ára gamall og hefur skorað 6 mörk í 24 leikjum frá komu sinni til Milan.
Milan borgaði tæplega 15 milljónir evra fyrir framherjann og er líklegt að Galatasaray muni greiða svipað verð til að kaupa hann.
Morata, sem á 37 mörk í 84 landsleikjum fyrir Spán og er ríkjandi Evrópumeistari, hefur leikið fyrir Real Madrid, Juventus, Chelsea og Atlético Madrid á glæsilegum ferli.
Milan vonast til að kaupa Santiago Giménez frá Feyenoord til að taka við framherjastöðunni af Morata.
Giménez er 23 ára gamall og er búinn að skora 16 mörk og gefa 3 stoðsendingar í 19 leikjum með Feyenoord á tímabilinu.
Athugasemdir