Franska úrvalsdeildarfélagið Mónakó gerði tilboð í Jordan Henderson, fyrirliða Ajax og fyrrum fyrirliða Liverpool. Félagaskiptafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að allt stefni í að Henderson geri samning við Mónakó til 2026.
Hann segir að samkomulag sé innan seilingar.
Hann segir að samkomulag sé innan seilingar.
Henderson er sjálfur sagður jákvæður fyrir því að skipta til Mónakó og er að fylgjast grannt með stöðu mála.
Henderson, sem er 34 ára að aldri, gekk í raðir Ajax í Hollandi í janúar í fyrra eftir að hafa átt erfitt uppdráttar með Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu. Hann hefur spilað 43 leiki með Ajax og er lykilmaður þar.
?????????? EXCLUSIVE: AS Monaco are closing in on deal to sign Jordan Henderson from Ajax as new midfielder!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) January 30, 2025
Permanent move almost agreed on contract until June 2026.
Here we go, soon ???????????????????????????????? pic.twitter.com/zdKo518vf2
Athugasemdir