Kristófer Konráðsson var í nóvember kynntur sem nýr leikmaður Fram. Hann kom til félagsins frá Grindavík en þar lék hann í tvö sumur. Kristófer er fæddur árið 1998 og er uppalinn hjá Stjörnunni. Hann hefur einnig leikið með Þrótti, KFG og Leikni á sínum ferli.
Kristófer á að baki 39 leiki í efstu deild, 47 leiki og fimm mörk í B-deild og 14 leiki og sex mörk í C-deild. Hann ræddi við Fótbolta.net um skiptin í Fram.
Kristófer á að baki 39 leiki í efstu deild, 47 leiki og fimm mörk í B-deild og 14 leiki og sex mörk í C-deild. Hann ræddi við Fótbolta.net um skiptin í Fram.
Hvernig er að vera orðinn leikmaður Fram og hvernig var aðdragandinn að skiptunum?
„Það er fyrst og fremst virkilega spennandi að vera orðinn leikmaður Fram! Aðstaðan hérna er líklegast sú besta á landinu og mikil andi í félaginu. Það eru allir staðráðnir í að gera betur en í fyrra og ég vona að ég geti hjálpað félaginu að ná þeim markmiðum."
„Rúnar og Helgi höfðu bara samband við mig fljótlega eftir síðasta tímabil, og boltinn rúllaði nokkuð þægilega fyrir sig eftir það. Ég þekkti auðvitað Helga frá Grindavík auk nokkurra leikmanna sem ég hafði spilað með, hjá Leikni og Grindavík."
Engin vorkunn, heldur æðruleysi og vilji til þess að ná árangri
Hvernig horfir þú til baka á tímabilið með Grindavík?
„Það var auðvitað tímabil sem átti sér stað við einstakar aðstæður. Horfandi til baka þá situr eftir hjá manni er æðruleysið og viljinn til þess að ná sem mestum árangri, burt séð frá því hvaða aðstæðum bæjarfélagið var í. Það var engin vorkunn, hvort sem talað er um þjálfara, leikmenn, stjórn eða aðra sem komu að félaginu. Allir gerðu sitt besta til þess að halda heiðri félagsins á lofti og ég tel það, á sinn hátt, hafa tekist."
„Það kom til greina að vera þar áfram, en mér fannst einnig tími kominn á að fara aftur í efstu deild og sýna að ég eigi fullt erindi þar."
Fyrsta skref að komast í efri hlutann
Hvað langar þig að afreka með Fram?
„Mig langar að hjálpa Fram að taka næsta skref í sinni þróun. Þetta er risastórt félag með mikla sögu og á heima í hópi bestu félaga landsins. Hér er komin hágæða aðstaða og því ekkert okkur til fyrirstöðu að stefna á efri hluta deildarinnar. Í kjölfarið á því er hægt að setja stefnuna á Evrópusæti og titla, en fyrsta skref er að koma Fram í efri hluta efstu deildar."
Gerði ÍR mikinn greiða og fór í viðræður
Voru fleiri félög sem höfðu samband? Reyndi ÍR að fá þig eftir greiðan sem þú gerðir þeim?
„Já ég var í samskiptum við nokkur félög í haust. Ég átti samtal við ÍR en það flosnaði upp úr því eftir að þjálfarinn þar hætti. Fram varð hins vegar fljótlega fyrsti kostur eftir að það kom á borðið og er virkilega ánægður að hafa endað hér."
Verið eins og afleysingakennari
Kristófer er fjölhæfur leikmaður sem leyst hefur margar stöður síðustu ár en vill helst spila á miðjunni.
„Ég hef alltaf horft á mig sem teknískan og skapandi leikmann með gott auga fyrir spili, mikla þolinmæði og góðan vinstri fót. Út frá því tel ég að mínir styrkleikar nýtist best á miðjunni og ég vona að ég fái að sýna mig og sanna í þeirri stöðu. Ég hef verið örlítill afleysingakennari síðustu tímabil, sökum þess að ég get leyst flestar stöður á vellinum. Það eru auðvitað kostir og gallar við það, en maður spilar auðvitað bara þar sem þjálfarinn biður mann um og reynir að hjálpa liðinu," segir Kristófer.
Athugasemdir