Samkvæmt Telegraaf eru forráðamenn Ajax ekki sáttir við framkomu Jordan Henderson.
Henderson vill yfirgefa hollenska félagið til að ganga í raðir Mónakó sem leikur í frönsku úrvalsdeildinni.
Henderson vill yfirgefa hollenska félagið til að ganga í raðir Mónakó sem leikur í frönsku úrvalsdeildinni.
Henderson hefur hótað því að spila ekki fyrir Ajax aftur ef hann fær ekki sínu framgengt og þá er hann ekki lengur fyrirliði.
Ajax vill ekki missa Henderson sem hefur verið gríðarlega mikilvægur fyrir félagið á yfirstandandi tímabili. Ajax er í toppbaráttu í Hollandi.
Það er lítið eftir af janúarglugganum og spurning hvort Henderson fái ósk sína uppfyllta.
Henderson, sem er 34 ára að aldri, gekk í raðir Ajax í Hollandi í janúar í fyrra eftir að hafa átt erfitt uppdráttar með Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu.
Athugasemdir