Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fös 31. janúar 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Skyldusigrar hjá toppliðunum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þýska deildartímabilið er rúmlega hálfnað og er stórveldi FC Bayern með sex stiga forystu á toppi deildarinnar sem stendur.

20. umferð hefst í kvöld þegar Werder Bremen tekur á móti Mainz í Evrópubaráttunni og svo eru sex leikir á dagskrá á morgun.

FC Bayern tekur á móti fallbaráttuliði Holstein Kiel á meðan Borussia Dortmund, sem hefur gengið afar illa síðustu vikur, heimsækir Heidenheim.

Stuttgart spilar spennandi Evrópubaráttuslag við Borussia Mönchengladbach á meðan St. Pauli og Bochum eiga heimaleiki við Augsburg og Freiburg.

Union Berlin tekur á móti RB Leipzig í síðasta leiknum á laugardag en svo eru tveir leikir á dagskrá á sunnudaginn, þar sem Eintracht Frankfurt spilar við Wolfsburg í hörkuslag áður en Leverkusen mætir Hoffenheim.

Föstudagur
19:30 Werder - Mainz

Laugardagur
14:30 Stuttgart - Gladbach
14:30 Bayern - Holstein Kiel
14:30 Heidenheim - Dortmund
14:30 Bochum - Freiburg
14:30 St. Pauli - Augsburg
17:30 Union Berlin - RB Leipzig

Sunnudagur
14:30 Eintracht Frankfurt - Wolfsburg
16:30 Leverkusen - Hoffenheim
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 19 15 3 1 58 16 +42 48
2 Leverkusen 19 12 6 1 46 26 +20 42
3 Eintracht Frankfurt 19 11 4 4 44 26 +18 37
4 Stuttgart 19 9 5 5 36 28 +8 32
5 RB Leipzig 19 9 5 5 34 29 +5 32
6 Mainz 19 9 4 6 33 23 +10 31
7 Wolfsburg 19 8 4 7 42 34 +8 28
8 Gladbach 19 8 3 8 30 29 +1 27
9 Werder 19 7 6 6 33 36 -3 27
10 Freiburg 19 8 3 8 26 36 -10 27
11 Dortmund 19 7 5 7 34 33 +1 26
12 Augsburg 19 7 4 8 23 34 -11 25
13 St. Pauli 19 6 2 11 17 21 -4 20
14 Union Berlin 19 5 5 9 16 27 -11 20
15 Hoffenheim 19 4 6 9 25 37 -12 18
16 Heidenheim 19 4 2 13 24 40 -16 14
17 Holstein Kiel 19 3 3 13 28 48 -20 12
18 Bochum 19 2 4 13 17 43 -26 10
Athugasemdir
banner
banner