Tottenham Hotspur er í bílstjórasætinu þegar kemur að kapphlaupinu um franska kantmanninn Mathys Tel, sem vill fara frá FC Bayern vegna lítils spiltíma.
Tottenham er reiðubúið til að greiða 60 milljónir evra til að kaupa þennan 19 ára gamla leikmann sem hefur aðeins komið við sögu í 14 leikjum undir stjórn Vincent Kompany, eftir að hafa skorað 16 mörk í 69 leikjum fyrir komu Kompany til München.
Tel hefur verið algjör lykilmaður upp yngri landslið Frakka þar sem hann á 23 mörk í 40 landsleikjum. Manchester United, Aston Villa og Chelsea eru meðal félaga sem hafa sýnt leikmanninum áhuga en Tottenham leiðir kapphlaupið.
Tottenham sendi stjórnanda frá sér til München í gær þar sem hann fylgdist með Bayern keppa í Meistaradeildinni og fundaði með stjórnendum félagsins.
Tottenham er í leit að nýjum sóknarleikmönnum til að fullkomna leikmannahópinn sinn sem hefur hrjáðst af ótrúlegu magni meiðsla á tímabilinu.
Athugasemdir