Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 14:30
Elvar Geir Magnússon
Pedri búinn að skrifa undir til 2030
Mynd: EPA
Barcelona hefur tilkynnt um nýjan samning við miðjumanninn Pedri. Hann er þriðji leikmaðurinn sem Barcelona gerir nýjan samning við á skömmum tíma, áður höfðu Ronald Araujo og Gerard Martin skrifað undir.

Þá er búist við því að Gavi geri nýjan samning bráðlega og Lamine Yamal í sumar þegar hann verður 18 ára.

Pedri er 22 ára gamall en skaust fram á sjónarsviðið 17 ára gamall. Hann hefur verið mikið frá keppni síðustu tvö tímabil vegna meiðsla. Hann hefur hinsvegar náð að halda sér frá meiðslalistanum á þessu tímabili og sýnt gæði sín á miðsvæði Börsunga.

Hann er með fjögur mörk og fjórar stoðsendingar í 32 leikjum.


Athugasemdir
banner
banner