Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Andri Steinn og Magnús Ingi framlengja hjá Haukum
Andri Steinn Ingvarsson.
Andri Steinn Ingvarsson.
Mynd: Haukar - Hulda Margrét
Haukar hafa undanfarið verið að gera nýja samninga við leikmenn sína en eins og við sögðum frá í gær hefur Hallur Húni Þorsteinsson samið við félagið.

Á dögunum sömdu tveir aðrir ungir leikmenn við félagið en þetta eru þeir Magnús Ingi Halldórsson og Andri Steinn Ingvarsson.

Báðir eru þeir uppaldir hjá Haukum og hafa tekið miklum framförum undanfarið ár.

Andri Steinn sem var á dögunum valinn í hóp hjá U19 ára landsliðinu gerði tveggja ára samning við félagið. Hann er fæddur árið 2006 og hefur spilað 40 leiki með meistaraflokki og skorað í þeim 3 mörk.

Magnús Ingi er einnig fæddur 2006 og gerir líka tveggja ára samning. Hann á að baki 45 leiki og hefur skorað 4 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner