Fotbolti.net
10.03.25 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Neðstu liðin aldrei verið slakari

Neðstu liðin aldrei verið slakari
Canon

Mynd: EPA

Ipswich, Leicester og Southampton töpuðu öll um helgina en liðin eru í þremur neðstu sætum úrvalsdeildarinnar.
Ipswich og Leicester hafa safnað 17 stigum í 28 leikjum en Southampton er langneðst aðeins með níu stig.

Það er athyglisvert að sjá þrjú neðstu lið deildarinnar hafa aldrei verið með jafn fá stig þegar tíu leikir eru eftir en liðin hafa samtals safnað 43 stigum.

Southampton hefur tapað 23 af 28 leikjum sínum en Derby á met sem enginn vill eiga, fæst stig í sögu deildarinnar, þegar liðið safnaði aðeins 11 stigum tímabilið 2007/08. Það er spurning hvort það met sé í hættu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.