Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 16. mars 2023 12:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mótsmiðasala fyrir heimaleiki Íslands hefst á föstudaginn
Icelandair
Frá Laugardalsvelli.
Frá Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mótsmiðasala á heimaleiki Íslands í undankeppni EM 2024 hefst föstudaginn 17. mars klukkan 12:00 á tix.is.

Íslenska liðið hefur nýja undankeppni síðar í þessum mánuði þegar liðið spilar útileiki við Bosníu og Liechtenstein. Næsta sumar er svo komið að fyrstu heimaleikjunum.

Fyrsti heimaleikurinn verður spilaður á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, en það er leikur gegn Slóvakíu.Mótsmiðar gilda á alla heimaleiki Íslands í keppninni.

Með kaupum á mótsmiða fæst 20% afsláttur af miðum í almennri miðasölu. Vakin er athygli á fleiri og fjölbreyttari verðflokkum á landsleiki á Laugardalsvelli en áður. Nú er hægt að kaupa miða í fimm verðflokkum, sem fyrr með 50% afslætti fyrir 16 ára og yngri.

Miðakaupendur fá sömu sætin á alla fimm leikina og er hægt að fá miða allt frá kr. 8.800 til kr. 36.400 á alla fimm leikina. Mótsmiðasölu lýkur miðvikudaginn 17. maí klukkan 12:00. Almenn miðasala á stakan leik hefst tveimur vikum fyrir hvern leik.

Heimaleikir Íslands:
Ísland – Slóvakía laugardaginn 17. júní kl. 18:45
Ísland – Portúgal þriðjudaginn 20. júní kl. 18:45
Ísland – Bosnía Hersegóvína mánudaginn 11. september kl. 18:45
Ísland – Lúxemborg föstudaginn 13. október kl. 18:45
Ísland – Liechtenstein mánudaginn 16. október kl. 18:45
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner