Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
   sun 28. júlí 2024 23:23
Brynjar Ingi Erluson
Telegraph: Mazraoui færist nær Man Utd
Mynd: Getty Images
Marokkómaðurinn Noussair Mazraoui er að færast nær því að ganga í raðir Manchester United frá Bayern München. Telegraph greinir frá.

Hægri bakvörðurinn var nálægt því að semja við West Ham á dögunum, en félagaskiptin duttu upp fyrir þar sem hann hafði meiri áhuga á að fara til Man Utd.

Man Utd þarf þó fyrst að selja Aaron Wan-BIssaka áður en það kaupir Mazraoui.

West Ham er sagt hafa mikinn áhuga á því að fá enska bakvörðinn sem er líklega falur fyrir um það bil 16 milljónir punda, sem er sama verð og félagið ætlaði að greiða fyrir Mazraoui.

Ef þau félagaskipti ganga upp opnar það dyr fyrir Mazraoui en Erik ten Hag, stjóri United, er sagður spenntur fyrir því að fá hann inn í hópinn.

Ten Hag og Mazraoui unnu saman hjá hollenska félaginu Ajax en Marokkómaðurinn fór til Bayern árið 2022, sama sumar og Ten Hag tók við United.

United er einnig á eftir Matthijs de Ligt, liðsfélaga Mazraoui hjá Bayern.

Þær viðræður virðast flóknar. Félögunum kemur ekki saman um verð en United er reiðubúið að leggja fram rúmlega 30 milljóna punda tilboð. Bayern vill fá 42 milljónir punda og mun sá verðmiði ekki haggast.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner