Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
banner
   mán 29. júlí 2024 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Framtíð Simons skýrist í vikunni
Mynd: Getty Images
Xavi Simons, leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, mun taka ákvörðun um framtíð sína í þessari viku en þetta segir Fabrizio Romano á X.

Simons er þessa stundina í sumarfríi eftir að hafa tekið langt og strangt tímabil á láni hjá RB Leipzig og þátttöku hans á Evrópumótinu með hollenska landsliðinu.

Samkvæmt Romano mun Simons að öllum líkindum yfirgefa PSG í sumar og leiðir Leipzig baráttuna.

Annar lánssamningur er líklegasta lausnin en Leipzig hefur unnið að því að sannfæra Simons síðustu vikur.

Bayern München er einnig með í baráttunni en það mun koma í ljós á næstu dögum hvað Simons gerir.

Simons kom að 21 mark í 32 deildarleikjum sínum með Leipzig á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner