Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
   mán 29. júlí 2024 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Höfnuðu stóru tilboði í Deniz Undav
Deniz Undav.
Deniz Undav.
Mynd: Getty Images
Brighton hefur hafnað stóru tilboði frá þýska félaginu Stuttgart í Deniz Undav.

Þetta kemur fram á Sky Sports en Brighton hefur engan áhuga á því að selja leikmanninn sem varði síðasta tímabili á láni hjá Stuttgart.

Tilboðið hljóðaði upp á 25,3 milljónir punda.

Undav, sem er 28 ára gamall, skoraði 19 mörk í 33 keppnisleikjum með Stuttgart á síðustu leiktíð.

Hann var í þýska landsliðshópnum á EM í sumar en kom aðeins við sögu í einum leik.

Undav hefði verið dýrasti leikmaður í sögu Stuttgart ef Brighton hefði samþykkt tilboðið en þýska félagið er núna að skoða aðra möguleika.
Athugasemdir
banner
banner