Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
   mán 29. júlí 2024 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Smith Rowe verður dýrastur í sögu Fulham - Samkomulag í höfn
Emile Smith Rowe.
Emile Smith Rowe.
Mynd: Getty Images
Fulham hefur komist að samkomulagi við Arsenal um kaup á Emile Smith Rowe.

Þetta kemur fram á Sky Sports í dag. Kaupverðið er met í sögu Fulham en félagið borgar allt að 34 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Verið er að klára smáatriði á milli félaganna en Smith Rowe hefur einnig náð persónulegu samkomulagi við Fulham um kaup og kjör.

Búist er við því að Smith Rowe fari í læknisskoðun síðar í þessari viku.

Samblanda af samkeppninni hjá Arsenal og meiðslum hafa hamlað spiltíma Smith Rowe. Síðustu tvö ár hefur hann bara byrjað þrjá úrvalsdeildarleiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner