Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
   mán 29. júlí 2024 09:18
Elvar Geir Magnússon
Soule fékk alvöru móttökur á flugvellinum í Róm
Mynd: Getty Images
Það var mikil stemning á flugvellinum í Rómarborg í gær þegar Matias Soule lenti. Hópur stuðningsmanna Roma mætti til að taka á móti honum.

Þessi 21 árs Argentínumaður er í læknisskoðun hjá Roma núna en félagið skákaði samkeppni frá Leicester og krækti í leikmanninn frá Juventus.

Kaupverðið á vængmanninum í heild er í kringum 30 milljónir evra.

Soule var á láni hjá Frosinone á síðasta tímabili og skoraði ellefu mörk í ítölsku A-deildinni fyrir félagið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner