Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
   þri 30. júlí 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Marseille ætlar að leggja fram annað tilboð í Nketiah
Mynd: EPA
Franska félagið Marseille ætlar að koma með nýtt og endurbætt tilboð í enska framherjann Eddie Nketiah, sem er á mála hjá Arsenal á Englandi.

Arsenal hafnaði 20 milljóna punda tilboði Marseille í leikmanninn á dögunum en Arsenal ætlar að reyna að fá 30 milljónir fyrir Englendinginn.

Nketiah er 25 ára gamall og ekki tekist að festa sig í sessi í byrjunarliði Arsenal.

Hann er í leit að fleiri mínútum og telur hann sig geta fengið þær hjá Marseille.

Leikmaðurinn er búinn að ná samkomulagi um kaup og kjör, en bíður nú eftir að félögin nái saman.

Sky segir að Marseille sé að undirbúa nýtt tilboð í Nketiah, en upphæð þess kemur ekki fram.

Nketiah er þessa stundina með Arsenal í æfingaferð í Bandaríkjunum og komið við sögu í báðum leikjum liðsins sem það hefur spilað á undirbúningstímabilinu.
Athugasemdir
banner