Juve reynir að fá Sancho - Man Utd og Arsenal keppa um Brobbey - Man City vill Gordon
   fös 05. júlí 2024 12:45
Elvar Geir Magnússon
Heimild: RÚV 
Kounde með langflottasta klæðaburðinn í boltanum
Mynd: Getty Images
Klæðaburður Jules Kounde landsliðsmanns Frakklands og varnarmanns Barcelona hefur vakið mikla athygli. Kounde hefur gríðarlegan áhugan á tísku og er óhræddur við að fara nýjar leiðir og prófa eitthvað nýtt.

Jóhann Páll Ástvaldsson hefur verið með mjög skemmtileg innslög á RÚV í tengslum við Evrópumótið og í einu slíku var rýnt í klæðaburð Kounde.

Jóhann hitti fatahönnuðinn Hildi Yeoman sem er hrifin af klæðaburði Kounde.

„Það virðast allir vera sammála um það að Jules Koundé sé að rústa þessu. Ég myndi segja að hann standi upp úr á mótinu. Hann er dálítið bara að leika sér sýnist mér. Óhræddur við að prófa eitthvað nýtt sem er klassískt notað sem kvenlegt. Hann er með stílista,“ segir Hildur.

Unnar Steinn Ingvarsson leikmaður Fylkis var fenginn til að prófa nokkrar sambærilegar flíkur hjá Hildi í innslaginu sem sjá má hér að neðan.

Kounde og félagar í Frakklandi munu mæta Portúgal í 8-liða úrslitum EM í kvöld.

Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images


Athugasemdir
banner
banner