Það var varnarjaxlinn Axel Óskar Andrésson sem bjargaði stigi fyrir KR þegar að hann skoraði á 97 mínútu og jafnaði leikinn fyrir KR í leik gegn Stjörnunni en leikar enduðu 1-1 á Meistaravöllum í Bestu Deild karla.
Lestu um leikinn: KR 1 - 1 Stjarnan
"Já ég held að við hefðum átt skilið að vinna þennan leik, þetta var hörkuleikur samt alltaf erfitt að spila við Stjörnuna. Þeir voru bara þéttir til baka og voru góðir en við fengum okkar færi en ég bara veit ekki alveg hvort þetta voru sanngjörn úrslit" Sagði markaskorari KR í viðtali við Fótbolti.net eftir leik.
1-1 var niðurstaðan en eitt stig gerir kannski lítið fyrir bæði lið eða hvað?
" Við erum allavega ekki að tapa leikjum en að sjálfsögðu þurfum við þrjú stig en svona er þetta bara en sigurinn fer að koma"
"Að sjálfsögðu á KR ekki að vera tapa leikjum og vera þar sem við erum í töflunni en þetta er staðan og við verðum bara að líta í eigin barm og gera eitthvað í þessu og ég get lofað þér því við erum að reyna, þetta er erfitt en það er bara að drullast í gang núna" Sagði Axel er hann var spurður út í gengi KR sem eru án sigurs í síðustu sex leikjum.
Hvernig eru hlutirnir í KR eftir nýjan leikstíl og nýjar áherslur undir stjórn Pálma Rafns?
"Pálmi er bara geggjaður þjálfari og við erum ekki búnir að tapa leik eftir að Pálmi tók við sem er jákvætt og ég er 100% viss um að sigrarnir fara að koma"
"Fótbolti er alltaf fótbolti, sama hvort ég sé að verjast ofarlega eða neðarlega á vellinum þarf ég bara að gera mitt besta og gera eins vel og ég get fyrir liðið en fótbolti er bara fótbolti"
Athugasemdir